Þjónusta

Leitarvélabestun svo fólk finni þig á Google.

Fæstir fletta lengra en efstu niðurstöðurnar. Við sjáum til þess að Google skilji hvað þú gerir og hvar þú ert, svo þú birtist ofarlega þegar fólk leitar.

Innifalið

Hvað er innifalið

Úttekt á síðunni
Leitarorð á íslensku og ensku
Lagfæringar á hverri síðu
Skipulögð gögn fyrir Google
Google Business Profile
Search Console og mælingar
Nýjar síður og greinar
Mánaðarleg skýrsla

Grunnurinn

Fyrst lögum við tæknimálin: hraða, fyrirsagnir, myndir og tengla. Þá getur Google lesið síðuna án vandræða.

Réttu orðin

Fólk leitar á sinn hátt, oft með stuttum orðum og stundum án íslenskra stafa. Við finnum orðin sem þínir viðskiptavinir nota.

Kortið

Hjá flestum íslenskum fyrirtækjum skiptir kortið jafn miklu og leitin. Við setjum upp Google Business Profile svo þú sjáist þar.

Hentar þér ef

  • Fólk leitar að því sem þú selur en finnur þig ekki
  • Viðskiptavinir finna þig á Google eða í kortinu
  • Þú vilt heimsóknir sem kosta ekki á hvern smell
Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

1

Spjall

Við heyrum í þér í 20–30 mínútur og kynnumst rekstrinum. Engin skuldbinding.

2

Forsýn

Við hönnum nýju síðuna og sendum þér hana. Þú prófar hana í símanum.

3

Smíði

Ef þér líst á klárum við síðuna, tengjum lénið, bókanir og mælingar og prófum allt.

4

Opnun

Síðan fer í loftið og við skráum hana hjá Google. Svo sjáum við um að allt gangi vel.

Spurningar

Leitarvélabestun: algengar spurningar

Hvenær sé ég árangur?

Oft sjást fyrstu breytingar á nokkrum vikum. Mesti árangurinn kemur á nokkrum mánuðum.

Getið þið lofað fyrsta sætinu?

Nei. Það getur enginn gert heiðarlega. Við lofum vandaðri vinnu og sýnum þér árangurinn í hverjum mánuði.

Þarf ég nýja síðu?

Ekki endilega. Við skoðum núverandi síðu fyrst og segjum þér hreint út hvort borgi sig að laga hana.

Fá fría forsýn

Byrjum á frírri forsýn.

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu. Við sendum þér verð og forsýn af nýju síðunni áður en þú ákveður þig.

Við svörum innan eins virks dags.