Þjónusta

Öpp og hugbúnaður sem spara þér tíma.

Ef eitthvað í rekstrinum tekur allt of langan tíma er líklega hægt að láta tölvu gera það. Við hönnum og smíðum öpp og kerfi sem gera einmitt það.

Innifalið

Hvað er innifalið

Hönnun á viðmóti
Forsýn sem þú prófar
iPhone, Android eða vefur
Innskráning og mælaborð
Greiðslur og bókanir
Tengingar við önnur kerfi
App Store og Google Play
Uppfærslur og aðstoð

Fyrst forsýn

Áður en við forritum nokkuð færðu forsýn sem þú getur prófað. Þannig vitum við að við erum að smíða rétta hlutinn.

Smíðað til að endast

Við veljum traustar lausnir sem auðvelt er að bæta við þegar reksturinn stækkar.

Hentar þér ef

  • Eitthvað tekur marga tíma á viku
  • Þú vilt að viðskiptavinir geti bókað eða borgað sjálfir
  • Þú ert með hugmynd sem þú vilt sjá verða að veruleika
Ferlið

Svona gengur þetta fyrir sig

1

Spjall

Við heyrum í þér í 20–30 mínútur og kynnumst rekstrinum. Engin skuldbinding.

2

Forsýn

Við hönnum nýju síðuna og sendum þér hana. Þú prófar hana í símanum.

3

Smíði

Ef þér líst á klárum við síðuna, tengjum lénið, bókanir og mælingar og prófum allt.

4

Opnun

Síðan fer í loftið og við skráum hana hjá Google. Svo sjáum við um að allt gangi vel.

Spurningar

Öpp og hugbúnaður: algengar spurningar

Hvað kostar app?

Það fer eftir því hvað appið á að gera. Þú færð fast verð eftir að við förum yfir hugmyndina.

Á ég kóðann?

Já. Allt sem við smíðum fyrir þig er þitt.

Fá fría forsýn

Byrjum á frírri forsýn.

Segðu okkur aðeins frá fyrirtækinu. Við sendum þér verð og forsýn af nýju síðunni áður en þú ákveður þig.

Við svörum innan eins virks dags.